Frábær tölfræði Mbappé á móti Barcelona
RÚV ·
Mbappé kom Madrídingum yfir í Katalóníu í gærkvöld undir lok fyrri hálfleiks en Raphinha jafnaði fyrir Börsunga á 61. mínútu. Það var svo þremur mínútum fyrir leikslok að Mbappé skoraði sigurmark Real Madríd sem vann leikinn 2-1. Þrátt fyrir úrslitin er Barcelona enn í efsta sæti deildarinnar með 27 stig, en hefur nú aðeins tveggja stiga forskot á Atlético Madríd sem er í öðru sætinu og Real Madríd er í 3. sæti með þremur stigum minna en Barcelona. Úrslitin gerðu því toppbaráttuna meira spennandi. Kylian Mbappé sem skoraði bæði mörk Madrídinga í leiknum virðist hafa einstakt lag á að skora á móti Barcelona. Hann hefur nú skorað átta mörk í átta leikjum með Real Madríd á móti Barcelona. Áður spilaði Mbappé með París Saint-Germain í Frakklandi og spilaði fjóra leiki með PSG á móti Börsungum og skoraði í þeim sex mörk. Með 14 mörk í 12 leikjum Mbappé hefur því samtals skorað 14 mörk í 12 leikjum á móti Barcelona. Af þessum 12 leikjum hefur Mbappé skorað í níu þeirra eða í 75% tilvika þegar hann spilar á móti Katalóníufélaginu. Eftir tíu umferðir í spænsku deildinni er Mbappé þó aðeins næstmarkahæsti leikmaður deildarinnar með 11 mörk. Brasilíumaðurinn Raphinha hjá Barcelona er markahæstur með 13 mörk og Spánverjinn Lamine Yamal sem einnig spilar fyrir Barcelona er í þriðja sæti markaskoraralistans með átta mörk.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/26/2026, 12:08:18 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com