Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Beijing til Keflavíkur í einni ferð í fyrsta sinn

RÚV ·

Fyrsta beina flugið á milli Kína og Keflavíkur, með viðkomu í Kaupmannahöfn, var í dag. Sendiherra Kína segir þetta mikla breytingu í samskiptum ríkjanna, og verulegir hagsmunir eru undir að mati framkvæmdastjóra Ferðamálastofu. Talsverð viðhöfn var í Leifsstöð í morgun, þegar von var á Airbus-þotu Air China frá kínversku höfuðborginni Beijing. Þetta var í fyrsta skiptið sem flogið var beint frá Kína með Ísland sem áfangastað. Leikbreytir, segir sendiherrann „Þetta er veruleg aukning á tvíhliða samskiptum. Ég kalla þetta leikbreyti (e. gamechanger ) í 55 ára sögu stjórnmálasambands Íslands og Kína,“ sagði He Rulong sendiherra Kína á Íslandi í tilefni þessa. Flogið verður þrisvar í viku - ferðin tekur um fjórtán og hálfan tíma og fyrst í stað verður millilent í Kaupmannahöfn. Verulegir hagsmunir undir Pétur Þ. Óskarsson framkvæmdastjóri Íslandsstofu segir þetta hafa mikla þýðingu fyrir ferðaþjónustuna. „Kínverjar hafa verið hratt vaxandi hópur hjá okkur undanfarin ár og með þessu beina flugi má gera ráð fyrir að sú þróun haldi áfram. Ef 50.000 ferðamenn bætast við þá sem þegar koma, þá eru það tugir milljarða. Þannig að þetta eru verulegir hagsmunir sem eru undir.“ Í sama streng tekur Haukur Hauksson framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Bjarmalands sem m.a. býður upp á ferðir til Kína. „Þetta er gríðarlega mikilvægt fyrir einn stærsta markað sem er að opnast fyrir okkur í ferðaþjónustunni,“ segir Haukur. Hvað þýðir þetta fyrir þitt fyrirtæki? „Við erum að auka í og fara lengra austur á bóginn.“ Hvaða þýðingu hafa kínverskir ferðamenn fyrir ferðaþjónustuna? Í fyrra var metár í komum kínverskra ferðamanna. Þá komu hingað um 128.000 ferðamenn frá Kína, sem var 33,3% fjölgun frá árinu á undan og meira en tvöföldun frá árinu 2023. Kína er fjórði stærsti markaðurinn. Aðeins Bandaríkin (662.000), Bretland (229.000) og Þýskaland (152.000) skila fleiri ferðamönnum til Íslands. Næst á eftir Kína kemur Frakkland (103.000). Síðustu tólf mánuði (frá október 2025 - september 2026)

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/26/2026, 9:00:07 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗