Stærsti hluthafi Ölgerðarinnar um rannsóknina: „Afstaða mín til siðferðis í viðskiptum er skýr og óbreytt“
RÚV ·
Annar af stærstu hluthöfum Ölgerðarinnar, Bogi Þór Siguroddsson, segir að hann taki umfjöllun fréttaskýringaþáttarins Kveiks um fyrirtækið alvarlega. Hann telji að fyrirtæki eigi ekki aðeins að fara að lögum heldur einnig að starfa samkvæmt anda laganna. Heilbrigð samkeppni í viðskiptum sé grundvallaratriði. Í svari til fréttastofu um mat hans á rannsókn Samkeppniseftirlitsins á Ölgerðinni og meintri misnotkun fyrirtækisins á markaðsráðandi stöðu segir Bogi meðal annars: „Auðvitað tek ég umfjöllunina um samninga og sölufyrirkomulag Ölgerðarinnar mjög alvarlega. Mér finnst mikilvægt að rannsókn Samkeppniseftirlitsins fái að hafa sinn gang en get í raun fátt annað sagt á þessum tímapunkti.“ Svör Boga við spurningum fréttastofu bárust í tölvupósti. Slíkir samningar aldrei fyrir stjórn segir Bogi Bogi er stærsti hluthafi Ölgerðarinnar ásamt eiginkonu sinni Lindu Björk Ólafsdóttur. Þau eiga félögin Bóksal ehf. og Sindranda ehf. sem samtals eiga rúmlega 20 prósenta hlut í Ölgerðinni. Bogi var um tíma stjórnarformaður Ölgerðarinnar. Bogi og Linda áttu fjögurra prósenta hlut í Ölgerðinni 2021 en það ár bættu þau við sig tíu prósenta hlut og hafa síðan keypt meira í félaginu. Bogi segir í svörum sínum að á meðan hann var stjórnarformaður Ölgerðarinnar hafi þess konar einkaréttarsamningar og eru til rannsóknar hjá Samkeppniseftirlitinu aldrei komið inn á borð stjórnarinnar. „Á þeim tíma sem ég sat í stjórn Ölgerðarinnar komu samningar af því tagi sem nú eru til umfjöllunar hvorki inn á mitt borð né voru lagðir fyrir stjórn félagsins. Mér finnst rétt og eðlilegt að stjórnendur Ölgerðarinnar hafi ákveðið að taka þá til skoðunar og vona að öllum vafa verði eytt um réttmæti þeirra. Það er í þágu allra að málið verði upplýst og að félagið bregðist við með viðeigandi hætti reynist tilefni til.“ Bogi og Linda eiga líka fyrirtækið Fagkaup sem er stórveldi á sviði þjónustu við iðnað og byggingu fasteigna hér á landi. Fagkaup á meðal annars rafverktakafyrirtækið Johann Rönning, verkfær
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/16/2026, 7:01:22 AM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com