Forstjóri segir að háttsemi Ölgerðarinnar geti skýrt aukna hlutdeild á markaði
RÚV ·
Forstjóri CCEP á Íslandi, Anna Regína Björnsdóttir, segir að fyrirtækið hafi orðið vart við ýmislegt á drykkjarvörumarkaðnum á Íslandi sem hafi vakið spurningar um heilbrigða viðskiptahætti. Fréttastofa leitaði eftir viðbrögðum CCEP, sem áður hét Vífilfell, við rannsókn Samkeppniseftirlitsins á Ölgerðinni og meintri misnotkun fyrirtækisins á markaðsráðandi stöðu. Vífilfell er framleiðandi kóks á Íslandi og Ölgerðin er með pepsí. Samkeppni fyrirtækjanna í gegnum áratugina hefur hverfst um þessa tvo drykki sem verið hafa þeirra helstu tákn. Anna Regína segir meðal annars um rannsóknina í svörum sínum í tölvupósti: „Við viljum heilbrigða og virka samkeppni á markaði og teljum það alvarlegt ef fyrirtæki fara ekki að lögum og reglum. Við treystum því að rannsókn Samkeppniseftirlitsins leiði í ljós hvort svo hafi verið í þessu tilviki. [...] Það ríkir hörð samkeppni á þessum markaði og við höfum orðið vör við ýmislegt í gegnum tíðina sem hefur vakið spurningar hjá okkur um heilbrigða viðskiptahætti. Það er hins vegar hlutverk Samkeppniseftirlitsins að meta hvort um brot hafi verið að ræða og við treystum því ferli.“ Svör Önnu Regínu eru birt í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag þar sem fjallað er um samkeppnina og ríginn á milli þessara tveggja fyrirtækja. Þáttinn má hlusta á hér: Anna Regína Björnsdóttir, forstjóri CCEP sem áður hét Vífilfell, svarar spurningum um rannsóknina á Ölgerðinni. CCEP er næststærsta fyrirtækið á drykkjarvörumarkaði en var einu sinni langstærst. Segir CCEP ekki gera einkaréttarsamninga Eitt af því sem fréttastofa spurði Önnu Regínu að er hvort CCEP geri sambærilega einkaréttarsamninga og Ölgerðin er sögð gera. „Nei, við gerum ekki einkasölusamninga við viðskiptavini okkar, hvorki veitingahús né aðra aðila. Við setjum okkur ekki upp á móti heilbrigðri samkeppni.“ Slíkir einkaréttarsamningar eru eitt það helsta sem er undir í rannsókninni á Ölgerðinni. Með slíkum samningum eru viðskiptavinir fyrirtækis skuldbundnir til þess að eiga eingöngu
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/16/2026, 4:34:35 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com