Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Óskar eftir tillögum frá stjórnarandstöðunni í deilu um fiskveiðistjórnun

RÚV ·

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur óskað eftir frekara samráði við fulltrúa minnihluta á Alþingi um byggðahluta fiskveiðistjórnunarkerfisins. Hann biður um beinar tillögur frá stjórnarandstöðunni. Nokkuð ósætti hefur verið á Alþingi um málið og telja formenn þingflokka stjórnarandstöðunnar að innviðaráðherra hafi grafið undan trausti þegar línuívilnun og rækju- og skelbætur voru skornar niður í september. Útgerðir sem orðið hafa fyrir skerðingu vegna breytinganna hafa sagst uggandi yfir 50% lækkun frá síðasta ári. Í reglugerð sem innviðaráðherra gaf út í september nemur lækkun aflamarks til byggðakerfisins alls 5,8%. Línuívilnun hefur fram að fiskveiðiárinu 2018/19 nær alltaf miðað við 3375 tonn af þorski. Á fiskveiðiárinu 2018/19 var hún lækkuð í 3000 tonn og svo í 2000 tonn árið eftir. Hún hefur svo farið lækkandi og í nýjustu reglugerð frá því í fyrra er gert ráð fyrir 300 tönnum. Skel- og rækjubætur eru þar 182 tonn. Lengst af voru þær í kringum 1000 tonn. Forsvarsmenn fyrirtækja sem eiga takmarkaðan eignarkvóta segjast finna verulega fyrir lækkuninni en starfsemi þeirra byggist að miklu leyti á almennum byggðakvóta, sértækum byggðakvóta og línuívilnun. Eyjólfur segir að samráðsfundur hafi farið fram í vikunni með fulltrúum stjórnarmeirihlutans og stjórnarandstöðunnar. „Sá fundur gekk alveg prýðilega,“ segir Eyjólfur sem er bjartsýnn á að hægt sé að vinna saman að verkefninu þrátt fyrir ósætti innan þingsins. „Orðalag samkomulagsins er alveg skýrt. Það felst í því að við myndum hafa samráð við stjórnarandstöðuna, einn fulltrúi stjórnarandstöðu og annar frá stjórnarmeirihlutanum í samráði varðandi frumvarpsvinnu við frumvarp til laga um Byggðakerfið,“ segir Eyjólfur sem telur að samstaða sé um markmiðin. „Það er það að 5,3% kerfið og byggðakerfið stuðli að stuðningi við þær byggðir sem hafa farið illa út úr núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi, smærri byggðir sem hafa misst aflaheimildir,“ segir Eyjólfur.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/16/2026, 4:05:39 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗