Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Rússar boða viðræður við Úkraínu í nóvember

RÚV ·

Stefnt er að því að fulltrúar Úkraínu, Rússlands og Bandaríkjanna ræði leiðir til stríðsloka í nóvember í Abu Dhabi, tilkynntu rússnesk stjórnvöld í morgun. Viðræðurnar hafa að mestu verið á ís á árinu. Rússnesk stjórnvöld lýstu yfir vilja til að hefja viðræður á ný eftir fund Pútíns með Steve Witkoff, erindreka Bandaríkjanna, í Pétursborg í vikunni. Dmitry Peskov, talsmaður stjórnvalda í Rússlandi, hefur sagt að fundurinn verði fyrir 15. nóvember. Úkraínuforseti hefur ítrekað óskað eftir því að viðræður hefjist sem fyrst. Pútín sagði í sjónvarpsviðtali í gær að einblínt yrði á öryggisráðstafanir til framtíðar en ekki á stutt vopnahlé. Talsmaður stjórnvalda í Rússlandi, Dmitry Peskov, og forseti Rússlands, Vladimír Pútín.AP/Pool Sputnik Kremlin / Gavriil Grigorov

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/23/2026, 11:52:37 AM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗