65 handteknir í háværum mótmælum námsmanna í Albaníu
RÚV ·
Róstusöm mótmæli námsmanna í Albaníu hafa dreift úr sér frá höfuðborginni Tirana til smærri borga. Þeir hafa krafist afsagnar forsætisráðherrans, Edi Rama, í þrjá daga. Mótmælendur hafa ráðist að opinberum byggingum og þá hefur slegið í brýnu á milli þeirra og lögreglu sem bæði hefur beitt vatnsbyssum og táragasi. 65 mótmælendur voru handteknir á miðvikudaginn og 71 lögreglumaður hefur slasast í átökunum. Auk þess að krefjast afsagnar Rama kalla námsmenn enn fremur eftir því að stjórnvöld bæti slæma aðstöðu í háskólum og kjör námsmanna sem greiða há skólagjöld. Slegið hefur í brýnu á milli mótmælenda og lögreglu í Tirana og víðar.EPA / MALTON DIBRA
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/16/2026, 3:55:17 AM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com