Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Neitar að hafa takmarkað aðgang Úkraínu að Starshield

RÚV ·

Donald Trump Bandaríkjaforseti þvertekur fyrir að hafa takmarkað aðgang Úkraínu að Starshield-kerfinu, sérstakri útgáfu af Starlink-gervihnattaþjónustu SpaceX sem sérstaklega var þróuð fyrir hernað. Elon Musk, eigandi SpaceX, hafði áður sagt að enginn nema bandarísk yfirvöld geti fyrirskipað breytingar á virkni þess. Forsetinn hafi lokaorðið. „Það var ekki ég og ég held að það hafi ekki verið Elon,“ sagði Trump við blaðamenn í dag. „Minn skilningur er sá að kerfið sé eins og það hafi alltaf verið.“ Volodomyr Zelensky forseti Úkraínu sagði fyrr í dag að unnið væri að því að koma kerfinu í fulla virkni. Úkraína reiðir sig á kerfið til samskipta á vígvellinum, til loftárása á hernumdum svæðum Rússa og til að stýra drónum sem hindra loftárásir Rússa. Mikil spenna hefur verið í samskiptum Bandaríkjanna og Úkraínu síðan Trump tilkynnti um samning Bandaríkjanna og Rússa um kaup á rússneskri olíu. Evrópusambandið heitir aðstoð Evrópusambandið hefur heitið því að aðstoða stjórnvöld í Úkraínu svo þau þurfi ekki að reiða sig á Starlink og Starshield. Enn er þó langt í land að Evrópusambandið þrói kerfi sem standi kerfum SpaceX jafnfætis. Zelensky var sýndur stuðningur á leiðtogafundi Evrópusambandsins í dag en aðildarríkin sögðu takmörk fyrir því hversu mikið sambandið gæti aðstoðað stjórnvöld Úkraínu í þessum efnum. Ríki Evrópusambandsins deila gervihnattaupplýsingum í gegnum svokallað GOVSATCOM-kerfi. Til stendur að gera Úkraínu að fullum aðila að kerfinu. Þá er Evrópusambandið að þróa Iris2, kerfi svipað Starlink. Iris2 mun þó ekki fara í loftið fyrr en 2029 og ná fullri virkni ári síðar.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/16/2026, 9:40:38 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗