Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

„Mér fannst ég ekki hafa það traust sem þarf að vera til staðar“

RÚV ·

Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar, Hörður Arnarson, ræddi um starfslok sín í Kastljósi kvöldsins. Hann segist ekki hafa notið nægs trausts í starfinu en að þrátt fyrir það yfirgefi hann fyrirtækið sáttur. Hörður hefur starfað sem forstjóri Landsvirkjunar í 17 ár. Í októberbyrjun tilkynnti hann nokkuð óvænt um starfslok sín og gaf þá skýringu að þau mætti rekja til ágreinings um stjórnarhætti hjá fyrirtækinu. Umboð og verklag forstjóra segir Hörður að þurfi að vera skýrt. Þá eigi forstjóri að geta notið trausts í gerð flókinna viðskiptasamninga við stærstu fyrirtæki heimsins og sömuleiðis í að gæta hagsmuna þjóðarinnar. „Mér fannst ég ekki hafa það traust sem þarf að vera til staðar“ Hörður lýsir því að sú tilfinning að forstjóri njóti nægilegs trausts stjórnar hafi dvínað. „Tilfinningin er sú já og við náðum ekki að vinna úr því.“ Hörður Arnarson, fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar, segist ekki hafa notið nægs trausts í starfi. Hörður tilkynnti um starfslok sín í byrjun október. Hann segist sáttur með ferilinn og að fyrirtækið sé á góðum stað. Hörður segir þó að í slíkum ágreiningum sé mikilvægt að taka fram að ekkert sé rétt og rangt, þegar ábyrgðin sé mikil þurfi alltaf að ríkja traust milli stjórnenda. „Til þess að geta fengið góðar niðurstöður, bæði í rekstri og að stýra áætlun fyrirtækisins, þá þarf að vera mjög skýrt umboð og skýrt hvar ábyrgðin liggur svo góð niðurstaða fáist.“ Breyttar leikreglur Hörður bendir á að til þess að allt gangi upp hjá farsælu fyrirtæki þurfi að fara eftir leikreglum og þegar það sé ekki gert gangi rekstur ekki upp. „Það þurfa að vera rammar í kringum fyrirtæki, sérstaklega fyrirtæki eins og Landsvirkjun, þar sem eigandi kemur aldrei að fyrirtækinu.“ Eignarhald Landsvirkjunar er hjá þjóðinni, sem hefur enga beina aðkomu að rekstri fyrirtækisins. Hörður segir að rammar fyrirtækisins, hvernig stjórn og starfsemi sé háttað, hafi breyst töluvert, forstjóra og stjórn hafi ekki komið saman um hvort breyting þessi væri réttmæt eður ei.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/22/2026, 9:16:57 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗