Hvernig náði Lula sögulegum sigri í Brasilíu og fjöldahreyfing stúdenta stórsigri í Serbíu?
RÚV ·
Hvernig vann Lula, forseti Brasilíu, sögulegan sigur í landinu í gær og hvernig tókst fjöldahreyfingu stúdenta að vinna stórsigur í þingkosningum í Serbíu? Hvað þýða þessar niðurstöður beggja vegna Atlantsála? Við ætlum að komast að því. Frambjóðandi í öðru sæti fyrri umferðar hefur aldrei unnið forsetakosningar Byrjum á Brasilíu. Luiz Inácio Lula da Silva var endurkjörinn forseti landsins í síðari umferð forsetakosninganna í gær eftir að hafa tapað naumlega í fyrri umferðinni. Sigurinn var þó líka naumur því han fékk 51, 8 prósent atkvæða meðan mótframbjóðandi hans, Flavio Bolsonaro, fékk 48,2 prósent. Bolsonaro er sonur Jair Bolsonaro, fyrrverandi forseta landsins, sem situr í 27 ára fangelsi fyrir tilraun til valdaráns. Bolsonaro yngri er 45 ára og kynnti sig sem heldur hófsamari og glaðværari mann en föður sinn. Hann er hægri maður og náði bæði til íhaldssamra kjósenda og þeirra sem vildu breytingar. Lula bauð sig fram gegn Jair Bolsonaro 2022 og vann þær kosningar. Hann bauð sig fyrst fram til forseta 1989 en náði fyrst kjöri 2003 og var forseti til 2010. Hann varð aftur kjörinn í embættið 2023. Þetta er í fjórða sinn sem hann er kjörinn forseti. Hann sat í fangelsi vegna spillingarmáls í 18 mánuði en ákærur gegn honum voru síðar felldar niður vegna formgalla. Úrslit kosninganna í gær eru líka söguleg. Frá því að lýðræði var komið aftur á í Brasilíu á níunda áratug síðustu aldar hefur það aldrei gerst að frambjóðandi sem hafnaði í öðru sæti í fyrri umferð færi með sigur af hólmi í seinni umferð. Erfið leið að forsetaembættinu Leið Lula að forsetastólnum í þetta skiptið var alls ekki auðveld . Hann tapaði fyrri umferð kosninganna 4. október og eftir það afskrifuðu hann margir og töldu algjörlega ómögulegt að hann gæti snúið úrslitunum sér í vil á þremur vikum. Sigur Lula er einnig áhugaverður í ljósi þess að undanfarið hafa kjósendur refsað leiðtogum sem sitja í embætti og kosið hægri sinnaðri frambjóðendur. Þetta hefur gerst yfir alla álfuna , í Argentínu, Ekva
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/26/2026, 3:00:19 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com