KR á toppinn í bili - Grindavík vann sinn fyrsta sigur
RÚV ·
Fjórir leikir voru í Bónusdeild karla í körfubolta í kvöld. KR heldur góðu gengi sínu í byrjun móts áfram og vann Ármann, 108-74. Grindavík hefur farið illa af stað í titilvörninni en vann sinn fyrsta sigur í kvöld. Grindavík lagði Stjörnuna, 98-92. Önnur úrslit í kvöld voru þau að Valur lagði Njarðvík 93-85 og Höttur vann ÍR, 108-96. KR er efst með 6 stig eftir kvöldið en Keflavík, Álftanes og Tindastóll geta jafnað það annað kvöld. Þá sækir Tindastóll Sindra heim og Álftanes tekur á móti Keflavík. Tölfræði leikja kvöldsins og stöðuna í deildinni má finna hér. KR er með fullt hús stiga eftir þrjá leiki.Mummi Lú
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/22/2026, 9:07:55 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com