Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Alltaf eins, aldrei eins

RÚV ·

Arnar Eggert Thoroddsen skrifar: Það er eins gott að vanda til verka þegar besta hljómsveit í heimi gefur út nýja plötu. Ég gat ekki haldið aftur af tárunum er ég var að lýsa því hvaða merkingu hún hefur fyrir mig í hlaðvarpi einu, já, svo djúpt liggja þræðirnir í þessum líkama og þessari sál. Þannig að undirbúið ykkur fyrir rennireið. Platan hefst á laginu „Lygar“ og þar er af riffum nóg, „hefðbundinn“ Ham-massi sem neglir þig upp við vegg. „Ég er hann“ viðheldur þessu upp að vissu marki, melódískara þó og góður vitnisburður um lagasmíðanáðargáfu Sigurjóns Kjartanssonar. „Inni í höfði mér“ er hins vegar fullkomlega inni í nokkurs konar alþýðuramma (já, ég sperrti upp eyrun líka, lesandi góður). Kristjana Stefánsdóttir opnar það með glæsisöng áður en farið er í „hamferð“ þar sem Sigurjón syngur um hrossagauka og að sólin skíni í heiði. En inni í höfðinu deyi hann nú samt og Óttarr kemur inn með söng um að í eðli lífsins sé að reyna hvern mann. Ótrúlegt lag en þetta er engin u-beygja samt. Þessi þráður hefur alltaf verið í tónlist Ham, stóreflis niður aldanna sem kallar fram eitthvað fornt og mikilúðlegt. Hér er þetta einfaldlega tosað aðeins meira upp. Steinunn Eldflaug syngur „la la la“ í „Stubbur“ en aftur er skipt í vel smurt rokk á „Hellisheiði“, vinkill Ham á „Born To Be Wild“ eiginlega. Tilraunir spretta hins vegar upp á „Rashomon“ hvar heyra má „eðlilega“ rödd Óttars og mér heyrist að flestir meðlimir Ham leggi þarna til rödd einnig. Og hér kemur kór, aftur er það „la la la“ en nú er eins og við séum í stílfærðum færeyskum hringdansi eða á skuggum bundnum miðnæturfundi einhverra aldinna höfðingja. Gotneskt, þungt, epískt, Ham-legt. Endalok alls er ný hljóðversplata rokkhljómsveitarinnar Ham. Arnar Eggert Thoroddsen rýnir í gripinn sem jafnframt er plata vikunnar á Rás 2. „Nótt finngálksins“ býr yfir ískrandi nýbylgjugítar á meðan „Ég ann“ býður upp á blandaðan kór yfir skriðdrekariffum að hætti hússins. Titillagið er næstsíðast, ógurlegur andskoti, og ég heyr

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/16/2026, 4:00:23 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗