Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Sprengjusveit sérsveitar kölluð út vegna sprengjuhótana til ráðuneyta

RÚV ·

Sprengjuhótanir voru sendar á nokkrar ríkisstofnanir og fyrirtæki í vikunni. Lögreglan telur ekki þörf á að bregðast við hótununum. Þær bárust í tölvupósti frá sama netfanginu. Sprengjuhótanir afar sjaldgæfar Tölvupóstur með sprengjuhótunum barst dóms- og forsætisráðuneytinu fyrr í vikunni og sprengjusveit var kölluð út til að meta aðstæður. Hótanirnar bárust í tölvupósti sem skrifaður var á einfaldri ensku og sendur á almennt netfang ráðuneytanna. „Ráðuneytinu barst hótun á miðvikudagsmorgun. Farið var eftir verkferlum og á endanum var niðurstaðan sú að ekki var þörf á frekari viðbrögðum,“ segir Freyr Gígja Gunnarsson, upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins. Hann segir hótunina ekki hafa raskað starfi í ráðuneytinu en segir það ekki til opinberrar birtingar hvað felist í verkferlum sem taka við þegar svona hótanir berast. Sprengjuhótanir séu afar sjaldgæfar. Sighvatur Arnmundsson, upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins, veitir svipaðar upplýsingar og segir í skriflegu svari að ráðuneytinu hafi borist skilaboð sem túlka megi sem hótun. Sömu skilaboð hafi borist dómsmálaráðuneytinu. Farið hafi verið eftir verkferlum og skilaboðin verið metin af lögreglu. Niðurstaðan hafi verið sú að ekki væri þörf á frekari viðbrögðum. Sprengjusérfræðingar mátu aðstæður Álíka hótanir hafa borist ýmsum ríkisstofnunum og fyrirtækjum í vikunni. Þetta staðfestir Helena Rós Sturludóttir, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra. Þegar slíkt gerist séu hótanirnar skoðaðar og metnar, meðal annars af sprengjusérfræðingum sérsveitar. Lögregla telur ekki ástæðu til að bregðast við að svo stöddu. Ekki fengust svör við því hvernig tryggt hafi verið að hætta væri ekki á ferðum eða hvort sama viðbragð hafi verið virkjað áður vegna álíka hótana. Advania er eitt af fyrirtækjunum sem fékk þessa hótun. „Við tókum þessu alvarlega og virkjuðum okkar innri ferla og fórum í varúðarskyni yfir húsnæðið og myndavélar,“ segir Hildur Einarsdóttir forstjóri Advania. Hún segir að starfsfólk hafi verið upplýst og

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/16/2026, 11:38:54 AM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗