Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Meirihluti kjósenda valdi „Serbíu frekar en mafíu“

RÚV ·

Kjósendur völdu á milli Serbíu eða mafíu í þingkosningum sem fóru fram í landinu í gær, að sögn kjósanda frá Íslandi. Stúdentahreyfing vann stórsigur á Alexandar Vučić, fyrrverandi forseta landsins og flokki hans, sem hafði verið við völd í fjórtán ár. „Það varð bara allt í einu alveg ótrúlegt gleðiástand“ Írena Guðrún Kojic er Serbi og Íslendingur. Hún fór sérstaklega til Serbíu til þess að kjósa því Serbar fengu ekki að kjósa hér á landi. Hún var í höfuðborginni Belgrad í gær þegar fagnaðarlætin brutust út. „Ég var reyndar í heimahúsi þegar forsetinn kom fram í sjónvarpið og viðurkenndi í raun og veru tapið.“ Írena segir allt hafa ætlað um koll að keyra þegar niðurstöður kosninganna voru ljósar. „Það varð bara allt brjálað í Belgrad í gær. Bílar allir flautandi, fólk syngjandi og dansandi úti á götu. Það varð bara allt í einu alveg ótrúlegt gleðiástand í borginni.“ Fyrr um daginn hafði Vučić lokað hluta miðborgarinnar þar sem talning atkvæða fór fram og forsetaskrifstofan er staðsett. Þar eru einnig tjaldbúðir sem kallast Ćaciland sem voru settar upp af stuðningsmönnum Vučić fyrir 18 mánuðum. Tjaldbúðirnar eru fyrir framan forsetaskrifstofuna. Búðirnar voru afgirtar og lokaðar almenningi. Stuðningsmenn Vučić sem bjuggu í búðunum réðust reglulega á mótmælendur. „Þannig að það voru allir á þessum tímapunkti vissir um það að hann myndi ekki viðurkenna ósigur og að hann myndi senda sitt fólk út á götu til þess að berja á stúdentum og fólki sem væri að mótmæla, ef það hefði komið til mótmæla. Sem hefði gerst ef hann hefði ekki viðurkennt ósigur sinn.“ Íslensk serbnesk kona segir þingkosningarnar í Serbíu hafa verið nokkurs konar þjóðaratkvæðagreiðslu. Meirihluti kjósenda hafi valið Serbíu frekar en mafíu. Stúdentahreyfing vann stórsigur á fyrrverandi forseta landsins og flokki hans. Eftir það var viðbragð lögreglu afturkallað og göturnar opnaðar á ný. Tjaldbúðirnar voru einnig teknar niður. Írena segir mikla gleði hafa verið í borginni eftir sigur stúdentahreyfingarinn

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/26/2026, 7:58:30 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗