Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Fjögur rauð þegar Víkingur vann Breiðablik

RÚV ·

Víkingur lagði Breiðablik í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Leikið var á Kópavogsvelli og kom Jónatan Guðni Arnarsson Blikum yfir á 20. mínútu. Mínútu síðar fékk Anton Logi Lúðvíksson rautt spjald í liði Breiðabliks og undir lok hálfleiksins fékk Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari liðsins, að fara sömu leið. Einum fleiri komust Víkingar yfir með mörkum frá Daníel Hafsteinssyni og Sveini Margeiri Haukssyni. Á lokamínútunni fengu svo Daníel og Ásgeir Helgi Orrason, Bliki, rautt spjald þegar upp úr sauð. Víkingar eru fyrir löngu búnir að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn en Breiðablik er eftir tap kvöldsins með 36 stig í 4. sæti. Víkingar nældu í 3 stig í kvöldRÚV / Mummi Lú

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/16/2026, 10:41:30 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗