Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Sveitarfélög toga í gagnaver á meðan almenningur mótmælir uppbyggingu vestanhafs

RÚV ·

Sveitarfélög víða um land hafa undanfarið lýst áhuga á byggingu gagnavera. Textareiturdstöðu í Bandaríkjunum. Innan við tvær vikur eru til þingkosninga og kjósendur eru ekki eins spenntir fyrir þessum orkufreku risaframkvæmdum og forseti landsins. Á síðustu vikum hafa tvö sveitarfélög til viðbótar slegist í hópinn. Ráðamenn í Dalvíkurbyggð undirrituðu í vikunni viljayfirlýsingu um byggingu gagnavers í sveitarfélaginu. Raforkuþörfin væri upp á tíu megavött og möguleiki á stækkun. Rísa næstu gagnaver á Akranesi eða Árskógssandi? Áætlað er að gagnaverið yrði byggt á atvinnusvæði ofan við Árskógssand. Yfirlýsinguna undirrita fulltrúar Dalvíkurbyggðar og framkvæmdaaðilinn, sem í þessu tilviki er ekki gagnavers-fyrirtæki heldur einstaklingar með áhuga á að koma verkefninu af stað. Í síðasta mánuði var annað slíkt plagg undirritað, um byggingu gagnavers í Grjótkelduflóa, Akranessmegin við Akrafjall. Mikill meðbyr er með starfsemi gagnavera hérlendis og fjölgar í hópi sveitarfélaga sem lýsa áhuga á byggingu þeirra. Vestanhafs blása aðrir vindar og margir sem vilja hægja á hraðri uppbyggingunni. „Hugsunin er sú að byrja að byggja upp eina einingu en á nokkurra árabili þá er stefnan sú að byggja upp allt að 10 einingar“, segir Sturlaugur Haraldsson, bæjarstjóri á Akranesi. Á Akranesi voru það einnig áhugasamir einstaklingar sem undirrituðu til móts við sveitarstjórnarfólkið. „Þeir munu starta verkefninu en svo er mjög líklegt að eftir því sem verkefninu fram vindur þá koma eflaust fleiri aðilar inn í verkefnið með þeim.“ Viljayfirlýsingar fela ekki í sér neina bindingu fyrir sveitarfélögin eða fyrirtæki. Þau lýsa því yfir að báðir aðilar hafi áhuga, við vilji tala saman og mögulega láta verða af framkvæmdinni. Alltaf með fyrirvara um að samningar náist um orku Nokkuð ljóst er að fleiri gagnaver eiga eftir að rísa á næstu árum og sveitarfélögin sjá mörg hag í að taka þátt í kapphlaupinu. Þá toga auðvitað störfin en líka afleidd störf, möguleiki á nýtingu glatvarma og að annars

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/22/2026, 7:51:09 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗