33 hljóta starfslaun afreksíþróttafólks
RÚV ·
Það eru sérsambönd ÍSÍ sem sækja um fyrir sitt afreksfólk og í ár sóttu 22 sérsambönd um starfslaun fyrir 102 einstaklinga. Samhliða var sótt um starfslaun og afreksstyrki úr Afrekssjóði ÍSÍ og forgangsröðuðu sérsamböndin sínum umsækjendum og tóku úthlutunarnefndir svo mið af því. Út úr þessari vinnu kom svo að 29 einstaklingar hljóta og tvö pör hljóta starfslaun næstu 12 mánuðina. Auk launanna sjálfra nýtur íþróttafólkið faglegs stuðnings fagteymis Afreksmiðstöðvar ÍSÍ á sviði sálfræði, sjúkraþjálfunar, næringarfræði og styrktarþjálfunar. Íþróttafólkið raðast í A-, B- og C-flokk eftir umfangi stuðningsins. Þrennt fær A-styrk að þessu sinni: Hilmar Örn Jónsson sleggjukastari, Snæfríður Sól Jórunnardóttir sundkona og Eygló Fanndal Sturludóttir lyftingakona. Bæði pörin og 14 einstaklingar fá B-styrk og 12 einstaklingar C-styrk. Þau sem hljóta starfslaun nú eru: Starfslaunaþegar 2026–2027 Íþróttafólk Flokkur Dansíþróttasamband Íslands Nikita Bazev og Hanna Rún Bazev Óladóttir B Nicolo Barbizi og Sara Rós Jakobsdóttir B Fimleikasamband Íslands Dagur Kári Ólafsson B Thelma Aðalsteinsdóttir B Ágúst Ingi Davíðsson B Hildur Maja Guðmundsdóttir B Frjálsíþróttasamband Íslands Hilmar Örn Jónsson A Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir B Sindri Hrafn Guðmundsson B Baldvin Þór Magnússon B Erna Sóley Gunnarsdóttir B Elísabet Rut Rúnarsdóttir C Daníel Ingi Egilsson C Golfsamband Íslands Gunnlaugur Árni Sveinsson B Hulda Clara Gestsdóttir C Kraftlyftingasamband Íslands Kristín Þórhallsdóttir B Lyftingasamband Íslands Eygló Fanndal Sturludóttir A Guðný Björk Stefánsdóttir C Skíðasamband Íslands Matthías Kristinsson C Anna Kamilla Hlynsdóttir C Jón Erik Sigurðsson C Bjarni Þór Hauksson C Skotíþróttasamband Íslands Arnór Logi Uzureau B Hákon Þór Svavarsson B Skylmingasamband Íslands Andri Nikolaysson Mateev B Sundsamband Íslands Snæfríður Sól Jórunnardóttir A Snorri Dagur Einarsson B Guðmundur Leo Rafnsson C Jóhanna Elín Guðmundsdóttir C Einar Margeir Ágústsson C Taekwondosamband Íslands Leo
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/30/2026, 4:01:01 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com