Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Hálfu Oxford-stræti breytt í göngugötu

RÚV ·

Hluta hinnar sögufrægu verslunargötu Oxford-strætis í London var í dag breytt í göngugötu. Sadiq Khan, borgarstjóri í London, sagði að götuhlutanum hefði verið breytt að eilífu. Búið er að loka fyrir umferð bíla og strætisvagna á um eins kílómetra hluta götunnar. Til stendur að gera hana alla að göngugötu á næstu árum ef vel tekst til með þann hluta sem þegar hefur verið breytt. Borgarstjórinn sagði að þetta væri sögulegur dagur fyrir Oxford-stræti og höfuðborgina alla. Með þessu væri verið að styðja við verslun við götuna. Markmiðið með breytingunni er að fjölga þeim sem fara þar um. „Götunni hefur hnignað síðustu áratugina, ég myndi segja að henni hafi hnignað skipulega,“ sagði Khan í viðtali við BBC Radio 4. „Ég er ekki reiðubúinn að standa hjá á sama tíma og verslanir flytjast frá götunni og störf tapast.“

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/26/2026, 2:13:27 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗