Loftbrú verður föst krónutala en ekki prósenta af fargjaldi
RÚV ·
Íbúar á landsbyggðinni hafa getað nýtt sér Loftbrú við kaup á flugi innanlands frá 2020. Hver og einn hefur átt rétt á sex flugleggjum á ári sem voru niðurgreiddir um 40% af ríkinu. Innviðaráðuneytið tilkynnti í dag breytingar á þessu fyrirkomulagi. Frá og með næstu áramótum verður föst krónutala niðurgreidd af hverju fargjaldi, 7000 krónur fyrir fluglegg eða 14.000 fyrir ferð fram og til baka. Á vef Stjórnarráðsins er haft eftir innviðaráðherra: „Þjónusta Loftbrúar hefur verið þýðingarmikil fyrir íbúa á landsbyggðinni. Markmiðið með breytingum á fyrirkomulaginu er að verja jákvæð áhrif Loftbrúar og tryggja að íbúar landsbyggðarinnar njóti áfram góðs af þeim ávinningi sem Loftbrú skapaði. Við viljum á sama tíma búa svo um hnúta að kostnaður verði fyrirsjáanlegri og innan ramma fjárlaga,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra. Hafa farið fram úr áætlunum Um 600 milljónir króna hafa verið áætlaðar fyrir Loftbrú síðastliðin ár. Það hefur ekki dugað til og hefur verið mætt með aukafjárveitingum. Árið 2025 fóru útgjöld vegna Loftbrúar 140 milljónir fram úr áætlun. Í tilkynningu innviðaráðuneytisins segir: „Á síðustu árum hafa verið um eða yfir 80 þúsund ferðir verið keyptar með afsláttarkóðum Loftbrúar. Meðalniðurgreiðsla á síðustu árum hefur verið frá sex til rúmlega níu þúsund krónur.“ Ef flugfargjald frá Egilsstöðum til Reykjavíkur kostar 35.000 krónur kostar það 28.000 krónur með nýja fyrirkomulaginu en kostaði 21.000 krónur með föstu prósentunni sem á að leggja af. Innviðaráðherra segir þetta góða leið til að draga úr verðbólgu. „Í nýju fyrirkomulagi getur afsláttur orðið hærri í prósentum þegar fólk bókar fyrr og tryggir sér hagstæð fargjöld en að sama skapi lægri eftir því sem fargjöldin hækka. Fólk getur þannig nýtt afsláttarkóða sína eins vel og kostur er. Að sama skapi dregur úr hvata að flugfargjöld hækki samhliða hækkandi niðurgreiðslu frá ríkinu með afsláttarkóðunum. Þannig getur þetta einnig haft góð áhrif til að draga úr verðbólgu.“
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/23/2026, 12:13:29 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com