Íslenskir rithöfundar lýsa yfir stuðningi við Sally Rooney
RÚV ·
Yfir 120 íslenskir rithöfundar lýsa yfir stuðningi við írska rithöfundinn Sally Rooney. Hún getur ekki tekið við höfundagreiðslum fyrir sölu á verkum sínum í Bretlandi vegna þess að hún hefur látið höfundarlaun sín renna til samtakanna Palestine Action. Bresk stjórnvöld skilgreindu samtökin sem hryðjuverkasamtök í júlí í fyrra. Faber, útgefandi Rooney, ákvað því í samráði við rithöfundinn að hætta sölu á bókum hennar í Bretlandi. Sjálf hefur Rooney aflýst ferðalögum sínum til Bretlands af ótta við að vera handtekin. „Þetta hefur sömu áhrif og ef bækur hennar hefðu verið bannaðar af yfirvöldum og í þessu felst ritskoðun,“ segir í tilkynningu frá sniðgönguhreyfingunni BDS Ísland. Þar er vakin athygli á stuðningsyfirlýsingu íslensku rithöfundanna sem er birt á vef hreyfingarinnar . Þar segir að bresk stjórnvöld hafi handtekið þúsundir friðsamra mótmælenda á grunni þess að samtökin Palestin Action séu skilgreind sem hryðjuverkasamtök. „Land sem bannar rithöfundum að tala opinskátt er ekki frjálst land. Samstaða skiptir máli,“ segir í stuðningsyfirlýsingunni. Sambærileg yfirlýsing frá fjölda alþjóðlegra listamanna var birt í The New Statesman , undir yfirskriftinni: „Sally Rooney er rithöfundur, ekki hryðjuverkamaður.“ Á meðal þeirra sem leggja nafn sitt við yfirlýsinguna eru nóbelsverðlaunahafarnir Anne Carson, Annie Ernaux og J.M. Coetzee. Í umfjöllun The Guardian frá því í gær segir að sala á bókum Rooney í Bretlandi hafi aukist eftir tilkynningu Faber í síðustu viku. Lesendur keppist við að ná í síðustu eintök bóka hennar áður en lagerar bókaverslana tæmast endanlega af bókum Rooney.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/22/2026, 12:20:26 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com