Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Af hverju valdi Snorri 20 leikmenn?

RÚV ·

Venjulega hefur Snorri valið 18 manna hóp en hann er fjölmennari í þetta sinn. „Það er tvennt sérstaklega í þessu. Ég tek þrjár örvhentar skyttur, þá Ómar, Donna og Viggó. Ástæðan er að Viggó er enn þá á leiðinni í að komast 100% til baka af sínum meiðslum. Svo er hann í leikbanni í fyrsta leiknum gegn Úkraínu. Hvað svo verður í leik númer tvö verður að koma í ljós. Ég vildi hafa allavega einn aukamann þar. Svo er ég með fjóra línumenn. Það er eitthvað sem ég er kannski ekki vanur að gera. Það er af því að Elliði Snær spilar fyrri leikinn. Hann fær svo frí eftir hann af persónulegum ástæðum. Þar af leiðandi er Jón Bjarni með okkur alla vikuna. Svo eru þrír markmenn,“ sagði Snorri að lokum. Einnig ræddi hann hvernig hann mun nýta landsliðsgluggann. Þá ræddi hann styrkleika andstæðinganna.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/16/2026, 4:59:17 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗