Allt að 105% verðmunur á umfelgun
RÚV ·
Langar biðraðir voru í dekkjaskipti í dag. Miklu munar á verði. Rekstrarstjóri dekkjaverkstæðis segir að um tveir af hverjum þremur velji nagladekk. „Þetta byrjaði á mánudaginn í síðustu viku, þá byrjaði fólk að taka við sér,“ segir Jón Gunnar Traustason rekstrarstjóri Sólningar við Smiðjuveg í Kópavogi. Beðið eftir umfelgun Í hádeginu í dag náði röðin langleiðina út Smiðjuveginn. Meðal þeirra sem þar biðu var Nicolas Paz Baquero sem þá hafði beðið í um tvo tíma. Daníel Steinar Emilsson beið líka eftir dekkjaskiptum hjá Sólningu. „Ég er að fara til Akureyrar um helgina og þarf að græja þetta fyrir það,“ sagði Daníel. Á hvernig dekk ætlarðu? „Ég er með þau í skottinu. Nagladekk. Það er öruggara, er það ekki?“ Alexander Jan hafði beðið skemur, í um 5 mínútur og var ekki viss um hversu langri bið hann gæti átt von á. „Ekki hugmynd. Mamma var að senda mig hingað. Þannig að ég veit það ekki.“ Í röðinni var líka Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir sem hafði beðið í 45 mínútur þegar hún var tekin tali. „Ég fer á nagladekk,“ svaraði hún spurð um hvernig dekk yrðu fyrir valinu. Umfelga bíl á korteri Handtökin eru hröð og það tekur um korter að umfelga einn bíl. Að sögn Jóns Gunnars hafa mest 150 bílar verið umfelgaðir á einum degi á verkstæðinu. „En meðaltalið hjá okkur er svona 120 - 130 bílar á dag.“ Bláar tölur boða vertíð Vertíðin byrjar yfirleitt á svipuðum tíma - í seinnihluta október. „Þegar það byrja að koma bláar tölur í spána hjá veðurfræðingunum. Þá tekur fólk við sér og líka þegar tekur að ísa á morgnana,“ segir Jón Gunnar. Hann segir meirihluta þeirra dekkja sem sett eru undir bíla á verkstæðinu vera negld. „Við erum að selja meira af nöglum núna en hefur verið.“ Hvert er hlutfallið? „Um tveir af hverjum þremur kaupa nagladekk.“ Mikill verðmunur Á vefsíðunni Dekkjaskiptin.is má sjá verðsamanburð á umfelgun á ýmsum tegundum bíla um allt land - og samkvæmt því getur munað miklu. Dekkjaskiptavertíðin stendur sem hæst, rekstrarstjóri segir að fólk taki við sér þegar hitatöl
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/22/2026, 8:08:02 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com