Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Allt að 750 íbúar Oleshky geta yfirgefið bæinn í dag

RÚV ·

Allt að 750 íbúar hernumda úkraínska bæjarins Oleshky í Kherson-héraði verða fluttir á brott með 25 rútum í dag. Dmitry Lubinets, mannréttindafulltrúi Úkraínuþings, greindi frá þessu í morgun og kvaðst telja óhætt fyrir íbúa að yfirgefa bæinn. Lubinets áréttaði jafnframt mikilvægi þess að sex daga vopnahlé héldi sem hófst á þriðjudag og Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, tilkynnti um fyrir viku. Um það bil 2.000 hafast enn við í Oleshky af þeim 24 þúsund sem bjuggu þar fyrir allsherjarinnrásina. Rússar hernámu bæinn mjög snemma. Ekki er vitað hversu margir vilja þekkjast boð um að verða fluttir brott en margir vilja vera þar áfram að sögn úkraínskra embættismanna. Rússar hafa ekki hleypt neyðarvistum inn í bæinn síðan í maí en nú er bílalest hlaðin matvælum, vatni og lyfjum á leiðinni þangað, að sögn rússneska dagblaðsins Izvestia, eftir að eyðingu jarðsprengja lauk í gær.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/30/2026, 9:25:33 AM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗