Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Landtökufólk réðst á fjölmiðlakonu við störf

RÚV ·

Bandarísk fjölmiðlakona var barin við störf á Vesturbakkanum í Palestínu í dag. Grímuklæddir menn réðust að henni vopnaðir prikum. Heidi Levine var að mynda fyrir bandaríska miðilinn Washington Post í umfjöllun um ofbeldi landtökufólks gegn palestínskum ólífubændum. Hún ræddi við fréttamenn úr sjúkrarúmi í Ramallah og segir fleiri en fimmtíu grímuklædda landtökumenn hafa ráðist á sig vopnaða prikum. Var merkt í bak og fyrir Levine segist hafa legið á jörðinni á meðan höggin dundu á henni í um tíu mínútur og hún hafi reynt að halda í myndavélina og töskuna sína. Washington Post segir Levine hafa verið í merktu vesti, bæði að framan og aftan. Samtök erlendra blaðamanna greina frá því að árásarmennirnir hafi stolið vegabréfi, síma og búnaði frá Levine. Samtökin segja árásina eina af mörgum á blaðamenn og almenna borgara á Vesturbakkanum og að ísraelsk stjórnvöld hafi hunsað ítrekaðar kröfur þeirra um að aðgerðir. Ísraelar hernámu hluta Vesturbakkans 1967 og hafa síðan hertekið sífellt meira land í trássi við alþjóðalög. Meirihluti íbúa er Palestínumenn. Þar búa líka þúsundir Ísraela sem hafa sölsað undir sig land Palestínumanna og eru ýmist kallaðir landtökumenn eða landránsmenn. Allar landtökubyggðir á hernumdum Vesturbakkanum brjóta í bága við alþjóðalög og þá gildir einu hvort þær hafi fengið samþykki yfirvalda í Ísrael.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/16/2026, 4:06:06 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗