Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Væri eðlilegast að draga umsókn til baka en er ekki á stefnuskránni

RÚV ·

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist ekki ætla að styðja þingsályktunartillögu formanna stjórnarandstöðuflokkanna um að draga formlega til baka aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Þetta kom fram í svari hennar við fyrirspurn Jens Garðars Helgasonar, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, í óundirbúnum fyrirspurnatíma. Spurði Jens Garðar hvort hún myndi, í ljósi þess að þjóðin hefði hafnað aðildarviðræðum og að Flokkur fólksins hefði ítrekað lagt fram tillögu um sama efni, styðja tillögu formannanna. Inga sagðist telja að það væri eðlilegasti hlutur í heimi en hún myndi þó ekki gera það. „Nú er ég hér í ríkisstjórn með tveimur öðrum flokkum og við höfum í engu sett þetta á okkar stefnuskrá.“ Inga rifjaði upp í síðara svari sínu að á þeim tíma þegar Flokkur fólksins lagði til að aðildarumsóknin yrði dregin til baka hafi verið vafi á því hvort hún væri yfir höfuð í gildi. Tillögurnar hafi verið lagðar fram til að fá úr því skorið og kvaðst hún ekki muna að Jens Garðar né aðrir þingmenn hafi viljað styðja hana þá. Endurtekið efni eftir fyrirspurnir Það er orðinn fastur liður að loknum fyrirspurnatíma að þingmenn stjórnarandstöðunnar komi upp og kvarti undan því að ráðherrar svari ekki spurningum. Engin breyting var á því í dag og nú varð það Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins sem reið á vaðið. Lýsti hann yfir óánægju með svör Ingu. „Ráðherrar fást ekki einu sinni til að gefa upp afstöðu sína lengur. Þeir vilja ekki segja hvaða skoðun þeir hafa á grundvallarmálum, jafnvel málum sem þeir hafa ítrekað árum saman lýst skoðun á og þá koma svör eins og frá ráðherra um að nú sé hann kominn í ríkisstjórn sem ráðherra og þá skiptu skoðanir engu máli.“ Sigurjón Þórðarson kom formanni sínum til varnar og lagði einfaldlega til að Sigmundur Davíð haldi námskeið fyrir ráðherra um hvernig svara ætti spurningum. „Því hann virðist einn vita hvernig eigi að svara spurningum hérna.“

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/22/2026, 2:41:57 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗