Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Icelandair sendi flugmönnum tillögur í kjaradeilunni fram hjá FÍA

RÚV ·

Icelandair hefur sent flugmönnum félagsins tillögur sínar að lausn kjaradeilu við Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA). Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA, segir Icelandair með þessu reyna að hafa áhrif á kjaradeiluna með því að fara fram hjá samninganefnd flugmanna. Hann segir samningum ekki komið á þessum hætti. Kjaradeilu Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair var vísað til ríkissáttasemjara í lok apríl. Í júní sammæltust FÍA og Icelandair um að vinna eftir verkáætlun ríkissáttasemjara undir friðarskyldu. Markmiðið var að klára samninga fyrir 15. september en það tókst ekki.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/30/2026, 3:48:48 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗