Dæmd í fangelsi innan við viku frá handtöku
RÚV ·
Dómstólar í Frakklandi hafa þegar dæmt 217 manns í fangelsi fyrir þátttöku í óeirðum síðasta laugardag. Gagnrýnendur segja málsmeðferð fljótfærnislega og saka stjórnvöld um kúgun. Dómsmál þeirra sem hafa verið handtekin fá hraðmeðferð innan franska dómskerfisins. Stjórnvöld hafa viðurkennt að hafa misst tök á óeirðunum síðustu helgi og segja þessa hröðu málsmeðferð nauðsynlega til að koma á reglu. Hin 19 ára gamla Mathilde og hinn tvítugi François eru meðal þeirra sem hafa þegar hlotið dóma, samkvæmt frétt AFP . Þau komu til Parísar frá borginni Auxerre á laugardaginn. Lögregla fann hnúajárn og fjaðrahníf í tösku mannsins og við skoðun á símum þeirra kom í ljós að þau höfðu rætt á samfélagsmiðlum um skæruliðahernað og að berja óeirðalögregluna. François var sendur rakleiðis í fangelsi, en hann hlaut átta mánaða dóm, þar af sex skilorðsbundna. Mathilde hlaut fimm mánaða skilorðsbundinn dóm. Dómsmálaráðherra Frakka, Gérald Darmanin, hefur hreykt sér af því að af þeim 2.500 sem voru handteknir síðustu helgi væru dómsmál hafin gegn fleiri en þúsund. Darmanin segir að um helmingur þeirra sem þegar hafi hlotið fangelsisdóma hefðu engan sakaferil að baki, sem væri mjög óvenjulegt og eflaust fordæmalaust þegar dæmt væri fyrir eignaspjöll. Réttindasamtök saka Darmanin um að beita dómara þrýstingi um að ákvarða mótmælendum þyngri refsingu og gagnrýna hann fyrir að fagna því að ungu fólki sé stungið bakvið lás og slá.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/22/2026, 5:16:25 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com