Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Langsterkustu vísbendingarnar um jákvæð áhrif af sértækum byggðakvóta

RÚV ·

Vífill Karlsson og Sveinn Agnarsson lögðust yfir gögn frá árunum 2008-2024 fyrir nýja rannsókn Rannsóknarseturs í byggða- og sveitarstjórnarmálum um strandveiðar og byggðakvóta . Vífill, sem er prófessor við Háskólann á Bifröst, segir þá hafa lagt upp með að meta hvort aukin umsvif vegna slíkra veiða leiði til aukinna atvinnu- eða útsvarstekna viðkomandi sveitarfélaga. Á meðan á rannsókninni stóð hafi hún víkkað út til fleiri hagvísa, svo sem atvinnuleysis, íbúaþróunar, búferlaflutninga, misskiptingar launa, íbúðaverðs og fjölda seldra íbúða. „Við skoðuðum fimm stærstu kerfin, það sem kallaðir eru pottar í íslenski fiskveiðistjórnunarkerfi eða 5,3% hlutinn. Honum hefur verið beitt til að bregðast við óæskilegri þróun í sjávarplássum eftir að kvótakerfið kom,“ segir Vífill. Ráðherra boðar heildarendurskoðun Fimm stærstu kerfin eru almennur byggðakvóti, sértækur byggðakvóti, skel- og rækjubætur, línuívilnun og strandveiðar. Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, hefur boðað heildarendurskoðun á hvernig þessum 5,3% af aflaheimildum er útdeilt. Samkvæmt þingmálaskrá er von á frumvarpinu í nóvember. Síðustu tvö fiskveiðiár, eftir það tímabil sem er til rannsóknar, hefur mun minni aflaheimildum verið úthlutað í línuívilnun og rækju- og skelbætur en árin áður. Úthlutanir til strandveiða jukust undir lok tímabilsins sem er til rannsóknar en hafa síðan þá verið enn stærra hlutfall af 5,3% kerfinu. Sértæki byggðakvótinn kemur best út Vífill segir rannsóknina sýna að aflaheimildir sem er úthlutað til sjávarplássa stuðli að hærra útsvari. Þegar mismunandi ráðstafanir eru skoðaðar sýndi ein leiðin sérstaklega jákvæða fylgni. „Af þeim fimm stærstu er sértæki byggðakvótinn að koma langbest út. Það eru sterkustu vísbendingarnar fyrir jákvæðum byggðaáhrifum af stjórnun hans og veitingu slíkra heimilda,“ segir Vífill. Niðurstöður fyrir aðrar byggðaaðgerðir voru mun óljósari. Áhrif byggðaaðgerðanna ekki marktæk eða í sumum tilvikum neikvæð. „Það voru línuívilnun, almenni byggðakvótinn

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/23/2026, 6:41:19 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗