Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Mosfellsbær krefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn

RÚV ·

Mosfellsbær hefur skorað formlega á ræstingafyrirtækið iClean að afhenda verkalýðsfélaginu Eflingu gögn sem snúa meðal annars að verklýsingum, tímaútreikningum, launakjörum og ráðningarfyrirkomulagi. Sveitarfélagið atyrðir fyrirtækið fyrir að hafa ekki brugðist við ítrekuðum beiðnum Eflingar. Gagnrýndi Mosfellsbæ vegna eftirlits Mosfellsbær útvistar ræstingum til fyrirtækisins iClean. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar gagnrýndi bæinn harðlega nýverið fyrir það hvernig staðið var að eftirliti með starfi ræstingafólks í bænum og því hvort ákvæði kjarasamninga væru uppfyllt. Meðal þess sem Sólveig Anna vakti athygli á var að fulltrúar Eflingar hefðu farið inn á þrjá grunnskóla í Mosfellsbæ í vinnustaðaeftirlit í haust. Hún segir að þar hafi sex starfsmenn iClean verið fyrir en að enginn þeirra hafi verið með vinnustaðaskírteini. Í bréfi til iClean, sem fréttastofa hefur undir höndum, segir Mosfellsbær að það sé ámælisvert að iClean hafi ekki brugðist með fullnægjandi hætti við ítrekuðum beiðnum Eflingar um gögn. „Hefur skortur á fullnægjandi upplýsingagjöf og viðbrögðum fyrirtækisins orðið til þess að dregið hefur verið opinberlega í efa hvort rétt sé staðið að framkvæmd samningsins og eftirliti sveitarfélagsins með henni.“ „Óásættanlegt“ að fólk án ráðningarsambands hafi aðgang að skólabyggingum Í áðurnefndu vinnustaðaeftirliti Eflingar í grunnskóla í Mosfellsbæ kom í ljós að einn starfsmaður var ekki í ráðningarsambandi við iClean. Þrátt fyrir það var hann með aðgangskort merkt skólanum og fyrirtækinu. „Mosfellsbær áréttar að það er með öllu óásættanlegt að einstaklingar sem ekki eru í lögmætu ráðningarsambandi við verktaka hafi aðgang að húsnæði sveitarfélagsins eða sinni þar störfum, sér í lagi í skólabyggingum,“ segir í bréfi bæjarins til iClean. Sveitarfélagið krefst þess formlega að iClean afhendi Eflingu gögn, meðal annars um verklýsingar og launakjör, fyrir 30. október. „Mosfellsbær leggur ríka áherslu á að verktakar sem sinna verkefnum fyrir sveitarfé

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/26/2026, 5:01:48 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗