Ræddu hvort norðurljósarannsóknir gætu verið yfirskin til njósna
RÚV ·
Kínversk-íslensk norðurljósa-rannsóknarstöð í Þingeyjarsveit, hefur verið rædd í Þjóðaröryggisráði. Í svari við fyrirspurn frá fréttastofu segjast íslensk stjórnvöld hafa fullt aðgengi að tækjum og gögnum stöðvarinnar. Evrópskar öryggisstofnanir, þar á meðal á Norðurlöndunum, hafa bent á að kínverskar leyniþjónustur beiti fjölbreyttum aðferðum við ólöglega upplýsingaöflun. Þetta er meðal þess sem segir í svari forsætisráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu um rannsóknir á Kárhóli í Þingeyjarsveit. Hvað sagði Þjóðaröryggisráð? Hér er svar upplýsingafulltrúa forsætisráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu: Starfsemi rannsóknarmiðstöðvarinnar á Kárhóli byggist á samstarfi íslenskra og kínverskra vísindastofnana. Íslensk lög gilda um starfsemina á Kárhóli og fylgjast þar til bærar stofnanir með því að lögum sé framfylgt líkt og með aðra starfsemi hér á landi. Evrópskar öryggisstofnanir, þar á meðal á Norðurlöndum, hafa bent á að kínverskar leyniþjónustur beiti fjölbreyttum aðferðum við ólöglega upplýsingaöflun, og þekkt sé að milliliðir séu notaðir, til dæmis stuðningur við rannsóknir og tækniþróun, til að skapa aðgang að upplýsingum. Í þessu ljósi hafa málefni Kárhóls komið til skoðunar hjá íslenskum stjórnvöldum, þar með talið á vettvangi þjóðaröryggisráðs. Íslenskar stofnanir hafa yfirlit yfir þann búnað sem settur hefur verið upp á Kárhóli, aðgengi að húsnæðinu, sem og að rannsóknargögnum sé þess óskað. Nýverið var því fagnað að byggingu kínversk-íslensku norðurljósa-rannsóknarstöðvarinnar væri að mestu lokið og stöðin loks farin að taka á móti vísindamönnum víða að. Fyrsta skóflustungan var tekin fyrir tólf árum og gengið hafði á ýmsu við fjármögnun. Heimskautastofnun Kína tók á sig allan kostnað - milljarð íslenskra króna. Stöðin, sem heitir Arctic Observatory, er samstarfsverkefni íslenskra og kínverskra vísindastofnana. Sjálfseignarstofnun stöðvarinnar leigir hana til kínversku heimskautastofnunarinnar - sá samningur hljóðar upp á 99 ár. Rannsóknir þekkt yfir
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/16/2026, 1:41:54 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com