Rólegt í dag en byrjar að rigna og hvessa á morgun
RÚV ·
Landsmenn mega búast við nokkuð dæmigerðu haustveðri í dag, nokkrum vindi og lítilsháttar skúrum. Á landinu austanverðu er þó útlit fyrir að það verði víða þurrt og bjart. Á morgun byrjar að hvessa og rigna hressilega og þá er viðbúið að aðstæður til ferðalaga geti orðið varasamar. Á sunnudag verður stormur og úrhellisrigning á sunnan- og vestanverðu landinu. Veðurspáin er svohljóðandi: Suðvestan 8-13 m/s í dag og lítilsháttar skúrir, en bjart að mestu um landið austanvert. Hiti víða 4 til 10 stig. Vaxandi sunnanátt í fyrramálið og dálítil væta, en léttskýjað norðaustan- og austanlands. Sunnan og suðaustan 15-25 m/s síðdegis á morgun með talsverðri rigningu, hvassast vestantil, en úrkomulítið á Norður- og Austurlandi. Hiti 7 til 13 stig.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/16/2026, 6:56:55 AM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com