Hestvagnar bannaðir í Central Park
RÚV ·
Borgarstjórn New York samþykkti í gær lög sem banna hestvagnaferðir um Central Park. Bannið tekur gildi í júní 2028. Boðið hefur verið upp á ferðir um garðinn í hestvögnum í 168 ár og eru þær vinsælar meðal ferðamanna. Bannið hefur áður verið til umræðu en stéttarfélög starfsmanna hestavagnaleiganna mótmæltu. Umræðan hófst á ný eftir að 18 ára ferðamaður lést í júní þegar hann féll af hestvagni eftir að hestur fældist. Borgin ætlar að hjálpa starfsmönnum hestaleiganna að finna ný störf. Dýraverndarsinnar hafa fagnað tíðindunum. Einn þeirra segir í viðtali við AP að steinsteypt borg sé ekki besti staðurinn fyrir hesta. Um 200 hestar eru í garðinum á vegum hestaleiga. 40 hafa drepist við störf þar, sumir vegna mikils hita, aðrir eftir árekstra.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/23/2026, 1:55:38 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com