Óánægja með breytingar á Loftbrú: „Hrein og klár skerðing fyrir okkur landsbyggðarfólkið“
RÚV ·
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir að ekki sé hægt að tala um niðurskurð á loftbrú. Breytingin sé tímabær kerfisbreyting og eigi að auka fyrirsjáanleika: „Við erum að búa til betra kerfi. Við erum að tryggja það í fyrsta lagi að allir fái sömu krónutölu af hverjum fluglegg. Allir sem eru núna að kaupa miða undir 17.500 krónur fá hærri prósentu en 40%. Það er meiri hvatning en áður þannig að fólk sé að kaupa sér ódýrari miða.“ Um 600 milljónir króna hafa verið áætlaðar í Loftbrú undanfarin ár. Það hefur ekki dugað og muninum hefur verið mætt með aukafjárveitingum. Árið 2025 fóru útgjöld vegna Loftbrúar 140 milljónir fram úr áætlun. „Nú ætlum við að tryggja Loftbrúna allt árið. Það er ekki fyrirsjáanlegt að við komumst í fjárauka í ár og ekki á næsta ári heldur,“ segir Eyjólfur. Íbúar á landsbyggðinni hafa getað nýtt Loftbrú við kaup á flugi innanlands frá 2020. Hver og einn hefur átt rétt á sex flugleggjum á ári sem ríkið niðurgreiddi um 40%. Innviðaráðuneytið kynnti í dag breytingar á þessu fyrirkomulagi. Frá og með næstu áramótum verður föst krónutala niðurgreidd af hverju fargjaldi, 7.000 krónur fyrir fluglegg eða 14.000 fyrir ferð fram og til baka. Skilur gremju fólks en segir að hægt sé að kaupa ódýra flugmiða Þingmenn stjórnarandstöðu hafa látið óánægju sína með breytinguna í ljós á Facebook. Meðal annars Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins. „Ríkisstjórnin ætlar að breyta Loftbrúnni þannig að meðalafsláttur lækkar um 24% miðað við síðasta ár. Enn ein ákvörðunin sem eykur kostnað fólks á landsbyggðinni. Ráðherra hvetur fólk til að bóka flug með lengri fyrirvara. En veikindi, fjölskylduaðstæður og óvænt erindi gera ekki alltaf boð á undan sér. Loftbrúin var ekki hugsuð sem tímabundinn afsláttarleikur. Hún var hugsuð til að jafna tækifæri fólks óháð búsetu. Það markmið á enn að vera leiðarljósið.“ Eyjólfur segist skilja gremju fólks en bendir á að með góðum fyrirvara sé hægt að bóka ódýra flugmiða þannig að 7000 krónur verði meira en 40% af mið
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/23/2026, 4:31:33 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com