Myndaalbúm ástarinnar og lífsins
RÚV ·
Tónlistarmaðurinn Jónas Björgvinsson sendi frá sér plötuna Lífsins bók. Platan hefur verið tæp þrjú ár í smíðum. Upptökustjóri var Sigurður Guðmundsson og við gerð plötunnar vann Jónas meðal annars með Magnúsi Þór Sigmundssyni sem samdi texta við þrjú laga hennar. „Eins og nafnið ber með sér þá fjallar lagið um lífsskeið manneskju sem birtist okkur eins og myndaalbúm ástarinnar og lífsins, þar saman koma allar góðar minningar, myndir og stundir í ferðalagi tímans gegnum lífið,“ segir Jónas um nýju plötuna. „Þetta er einmitt þema plötunnar, sem fjallar mest megnis um lífið, ástina og tilveru okkar sem manneskjur.“ Jónas verður með veglega útgáfutónleika í Tónabíói þann 22. október þar sem platan verður flutt í heild sinni ásamt nokkrum lögum af fyrri plötum.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/16/2026, 3:18:30 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com