Sigur gegn Póllandi fyrir luktum dyrum
RÚV ·
Kvennalandslið Íslands í handbolta mætti Póllandi í æfingaleik í Katowice í Póllandi í dag. Leikurinn fór fram fyrir luktum dyrum að ósk pólska liðsins. Bæði lið eru á leið á Evrópumótið í desember næstkomandi. Pólland var naumlega sterkara liðið framan af leiknum. Þær voru 17-16 yfir í hálfleik og svo 1-2 mörkum yfir þar til á síðustu 10 mínútunum. Þá seig Ísland fram úr og vann með 35 mörkum gegn 32. Liðin mætast aftur á laugardag kl. 16 og verður sá leikur sýndur beint á Livey og í Handboltapassanum. Elín Klara Þorkelsdóttir skoraði 11 mörk og þær Lilja Ágústsdóttir og Sonja Lind Sigsteinsdóttir 4 hvor. Elísa Elíasdóttir og Katrín Anna Ásmundsdóttir berjast um boltann í leiknum í dag.Handknattleikssamband Póllands
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/22/2026, 5:35:51 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com