Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Viðræður hafnar um kaup á Blikastaðalandi

RÚV ·

Arion banki og Íslensk verðbréf eru að hefja einkaviðræður um kaup þess síðarnefnda á öllum hlut dótturfélags bankans í Blikastaðalandi. Íslensk verðbréf fara í viðræðurnar fyrir hönd óstofnaðs sérhæfs sjóðs um kaup á hlutafénu. Fasteignaþróunarfélagið Klasi verður kjölfestufjárfestir í sjóðnum og þróar verkefnið ef af verður. Stefnt er að mikilli uppbyggingu á Blikastaðalandi. Samkvæmt tilkynningu Arion banka verður kaupverðið innan þeirra 14 til 16 milljarða sem kynntir voru sem verðhugmynd þegar ákveðið var að selja Blikastaðaland. Kristinn Þeyr Magnússon

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/30/2026, 10:12:06 AM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗