Borga sama kílómetragjald en fá verri þjónustu
RÚV ·
Íbúar Árneshrepps borga sama kílómetragjald og aðrir Íslendingar. Engu að síður er þjónusta Vegagerðarinnar umtalsvert minni í sveitarfélaginu heldur en annars staðar á landinu. Nú er vegurinn kominn í vetrarþjónustu sem þýðir að Vegagerðin heldur ekki úti reglulegu eftirliti með veginum og litlar upplýsingar er að fá um ástand hans og færð á umferdin.is. Sveitarfélagið segir akstursskilyrði mjög varhugaverð og efast um að vegurinn standist öryggiskröfur. Ástandið sé óviðunandi, sérstaklega í ljósi þess að grunnskólabörn eru keyrð til Hólmavíkur einu sinni í viku. „Ég leyfi mér að efast að þetta standist skoðun þegar horft er til jafnaðarreglunnar, að það sé borgað jafn mikið fyrir notkun á þessum vegi og annars staðar á landinu,“ segir Héðinn Birnir Ásbjörnsson, sem á sæti í samgöngunefnd Árneshrepps, í Síðdegisútvarpinu. Vegurinn í Árneshreppi er nú kominn í vetrarþjónustu. Sveitarstjórnin segir mjög varhugaverð akstursskilyrði í sveitarfélaginu. Ástandið sé óviðunandi, sérstaklega í ljósi þess að grunnskólabörn eru keyrð til Hólmavíkur einu sinni í viku. Grjóthnullungar á vegum Á Facebook-síðu Árneshrepps birtist færsla í gær þar sem íbúar voru hvattir til að láta vita hvernig ástandið á vegunum sé í ljósi þess að Vegagerðin væri hætt að halda úti fastri vöktun og brygðist nú aðeins við tilkynningum. Degi fyrr hafði sveitarfélagið birt mynd af grjóthnullungum á veginum við Veiðileysukleif þar sem fólk var hvatt til að fara varlega. Þá kom fram í færslunni að grjót hefði einnig fallið á Kjörvogshlíð. Gerði við fimmtíu sprungin dekk í sumar Héðinn ólst upp í Djúpavík þar sem fjölskylda hans rekur hótel. Ferðalangar í sveitarfélaginu lenda oft í vandræðum vegna ástandsins á vegunum og þurfa þá íbúar og hótelstarfsmenn að bregðast við. Í sumar segist Héðinn hafa gert við fimmtíu sprungin dekk í sumar. Héðinn segir íbúa ekki vera að krefjast þess að bundið slitlag verði lagt heldur aðeins að vegurinn verði bættur og hann þjónustaður yfir vetrartímann. Fyrir utan að þe
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/30/2026, 1:51:18 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com