Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Selfyssingar og Þingeyingar næstir á dagskrá

RÚV ·

Sjötti þáttur Landsleikanna er á dagskrá á morgun og eru það Selfoss og Þingeyjarsveit sem mætast. Keppendur Selfyssinga eru þau Katrín Aagestad Gunnarsdóttir, Grímur Hergeirsson og Páll Óli Ólason. Keppendur frá Þingeyjarsveit eru Sigurbjörn Árni Arngrímsson, Andri Hnikarr Jónsson og Sigrún Aagot Ottósdóttir. Í seinustu viku voru það Skagamennirnir Eva Laufey Kjaran, Alexander Aron Guðjónsson og Bryndís Böðvarsdóttir sem sigruðu Akureyringa með 44 stigum. Tvær keppnir eru eftir í 16 liða úrslitum og brátt kemur því í ljós hvaða lið það eru sem mætast í átta liða úrslitum að undankeppni lokinni. Hægt er að sjá alla þætti Landsleikanna hér í spilara RÚV.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/30/2026, 4:03:42 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗