Segir landsbyggðarþingmenn ríkisstjórnarinnar í snúinni stöðu
RÚV ·
Eyjólfur Ármannsson endurskoðar breytingar á Loftbrú. Ákvörðun sem ráðherra kynnti fyrir helgi mætti mikilli mótstöðu; að niðurgreiða sex flugleggi um fasta krónutölu, 7.000 krónur hvern, en ekki um 40% eins og hefur verið frá því 2020. Ráðherra skoðar að hækka töluna í 9.000 krónur á fluglegg. Ákvörðun innviðaráðherra kom mörgum sveitarstjórum í opna skjöldu. Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri á Höfn, sagði í samtali við fréttastofu á föstudaginn að ekkert samráð hefði verið um málið þrátt fyrir fyrirheit um annað, síðast á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga í október. Mætti mikilli mótstöðu Ákvörðun ráðherra mætti mikilli mótstöðu um helgina. Sveitarstjórar, kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum, landshlutasamtök og þingmenn bæði í stjórn og stjórnarandstöðu mótmæltu áformunum. Ingvar Þóroddsson var einn þeirra þingmanna sem mótmæltu fyrirhugaðri breytingu. Lilja Rafney Magnúsdóttir, sem situr á þingi fyrir Flokk fólksins eins og Eyjólfur, gagnrýndi breytinguna líka um helgina. Á sunnudaginn sagði Eyjólfur í viðtali við RÚV að hann væri að íhuga að hækka töluna í 9.000 krónur á fluglegg. „Við erum að skoða að bæta við fjármagni í Loftbrú og fara þá í 9.000 krónur í styrk á hvern fluglegg í stað fyrir 7.000 krónur. Með því þá fengi Loftbrú hæsta fjármagn á fjárlögum nokkru sinni. Þetta er sannarlega í forgangi hjá okkur, þetta mál,“ sagði Eyjólfur. Hreinn niðurskurður Grétar Þór Eyþórsson stjórnmálafræðingur telur að ákvörðun ríkisstjórnarinnar sé sprottin af hvatanum til þess að skila hallalausum fjárlögum. Fjármálaráðherra hljóti að hafa haft bönd í bagga. „Þetta endar í ákvörðun sem virðist vera hreinn niðurskurður á þessu. [...] Þetta þarf ekki að koma á óvart þegar er verið að horfa til þess að skila hallalausum fjárlögum. [...] Ég held að fjármálaráðherra hljóti að hafa verið þarna í bakgrunninum.“ Grétar telur Eyjólf ekki hafa verið að spila neina skák með því að tala um 7.000 krónur á föstudegi og 9.000 krónur á laugardegi: „Eyjólfur hefur unnið hinga
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/26/2026, 2:54:38 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com