Veigar Páll í árs bann
RÚV ·
Veigar Páll greinir sjálfur frá þessu í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum nú síðdegis. Hann segist hafa tekið ADHD-lyf í próflestri í vor, en almennt eru slík lyf bönnuð nema fyrir þau sem eru með vottorð frá lækni um ADHD-greiningu. Því virðist ekki vera að heilsa í tilviki Veigars Páls. Bannið gildir afturvirkt frá þeim degi sem það var tekið og verður Veigar Páll því í banni til 11. maí á næsta ári. Hann segist þakklátur lyfjaeftirliti ÍSÍ að hafa ekki dæmt hann til hámarskrefsingar, sem er fjögurra ára bann. Orðrétt segir í yfirlýsingu Veigars Páls í dag: „2-3 ára bann er ekki óalgengt í svona tilvikum en vegna sérstakra aðstæðna og í ljósi þess að brot mitt var ekki til að afla mér forskots við íþróttaiðkun þá ákvað nefndin að vægari refsing væri viðeigandi. Ég geri mér fulla grein fyrir þeim áhrifum sem málið hefur á liðið og félagið mitt og ég mun gera mitt allra besta til að koma aftur sterkur til leiks fyrir Njarðvík eftir að banninu lýkur. Mér þykir afar leitt að hafa brugðist trausti liðsfélaga minna. Ég hef hitt þá og forsvarsmenn félagsins og beðist afsökunar á mistökum mínum. Ég styð fyllilega baráttuna gegn lyfjanotkun í íþróttum og að til staðar sé öflugt lyfjaeftirlit. Ég mun nú einbeita mér að háskólanámi mínu, ásamt almennri styrktarþjálfun, með það fyrir augum að koma sterkur til baka næsta vor. Virðingarfyllst, Veigar Páll Alexandersson“ Veigar Páll var valinn í landsliðshóp Íslands í febrúar á þessu ári þegar liðið mætti Litáen en var ekki í hópnum sem keppti í undankeppni HM í sumar.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/22/2026, 5:01:50 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com