Stjórnmálamaður dæmdur fyrir að brjóta kynferðislega á börnum
RÚV ·
Norðurírski stjórnmálamaðurinn Jeffrey Donaldson hefur verið dæmdur í 15 ára fangelsi fyrir að brjóta kynferðislega á börnum, þar af var hann sakfelldur fyrir eina nauðgun. Þá var Eleanor Donaldson, eiginkona hans, fundin sek um að aðstoða hann. Stúlkurnar voru sjö ára þegar fyrst var brotið á þeim en ofbeldið stóð yfir á árunum 1985–2008. Vegna laga á Norður-Írlandi á þeim árum situr Donaldson þó líklega aðeins í fangelsi helming tímans, eða í sjö og hálft ár. Að því gefnu að áfrýjun beri ekki árangur verður hann því aftur laus 2033. Hins vegar verður hann á skrá yfir kynferðisafbrotamenn það sem eftir lifir. Donaldson var áður formaður Lýðræðislega sambandsflokksins DPU sem er íhaldssamur hægriflokkur sem styður áframhaldandi samband Norður-Írlands við Bretland. Hefur ekki sýnt nein merki um iðrun Dómurinn er talinn nokkuð langur. Við dómsuppkvaðningu kom fram að mið hefði verið tekið af því hversu ung fórnarlömbin voru og hve aldursmunurinn á milli þeirra og Donaldson var mikill, sem og því hvað brotin voru framin á löngu tímabili. Þá var tekið fram að Donaldson hefði staðfastlega neitað ásökununum og því hefði ekki verið hægt að milda dóminn. Hann hefði ekki sýnt nein merki þess að iðrast gjörða sinna. Donaldsen er haldið í Maghaberry-fangelsinu á Norður-Írlandi en hann dvelur ekki meðal almennra fanga heldur í þeim hluta fangelsisins sem ætlaður er föngum með heilsufarsvandamál. Það er vegna þess að honum er talin stafa hætta af hálfu annarra fanga.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/16/2026, 1:30:28 AM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com