Fá tækifæri til að læra íslensku í vinnunni
RÚV ·
Svokölluð Málbrú hefur reynst vel við að auka íslenskukunnáttu starfsfólks hjúkrunarheimila sem er af erlendum uppruna. Þar lærir fólk orð sem tengjast faginu og fær æfingu á vinnutíma. 35% starfsfólks á hjúkrunarheimilum er með annað móðurmál en íslensku. Að læra tungumálið getur skipt sköpum í samskiptum við vistmenn og annað starfsfólk. „Þetta er mikilvægt fyrir mig,“ segir Magdiel Maluc Rodriguez Medina, sem vinnur á Hrafnistu. „Ég er að læra íslensku núna á Hrafnistu. Ég er að tala við íbúana, við alla.“ Samstarfsmaður hennar, Romeil Fajardo Andrade, tekur í sama streng. „Í vinnunni læri ég meira með íbúum,“ segir hann. Það sé gott að æfa sig í vinnunni og geta leitað aðstoðar hjá öðrum. „Og skemmtilegt að fá að læra meiri íslensku.“ Vantaði íslenskunám sem nýttist í vinnu „Það hefur bara verið mikil þörf á betra íslenskunámi sem er starfstengdara og nýtist þeim betur í vinnunni og það hefur líka skort kennslu sem á sér stað á vinnutíma,“ segir Heiða Björk Vignisdóttir, lögfræðingur hjá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu, SFV. „Við þróuðum þessa lausn í samstarfi við Mennta- og barnamálaráðuneytið og erum að sameina alla þessa þætti.“ „Ég er búinn að vera að læra íslensku hér í vinnunni í tvö ár. Ég er að læra íslensku með appi – Bara tala – og ég læri meiri orð, ný orð, inni í þessu appi,“ segir Romeil. „Inni í því er starfstengdur orðaforði, ýmsar æfingar, talæfingar, málfræði og fleira og svo getur það í vinnunni æft nýju orðin sem þau hafa lært,“ segir Heiða Björk. Fá aukið sjálfstraust til að tjá sig á íslensku „Verkefnið hefur reynst gríðarlega vel,“ segir Rebekka Levin, verkefnastjóri hjá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu. „Við höfum meðal annars séð mikla aukningu í sjálfstrausti til að tala íslensku á meðal starfsfólks, líka bara í samskiptum á milli starfsfólks og síðan starfsfólks og íbúa.“ „Við höfum séð að fólkið á heimilunum er bara að taka þátt og er að koma og kenna þeim orð, kenna þeim söngva og þetta er bara frábært,“ segir Rebekka.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/23/2026, 6:55:55 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com