HSÍ getur ekki styrkt Sérsveitina lengur
RÚV ·
HSÍ sendi frá sér yfirlýsingu í dag þess efnis að sambandið geti ekki lengur styrkt Sérsveitina, stuðningsmannahóp íslensku handboltalandsliðanna, fjárhagslega líkt og það hefur gert undanfarin stórmót. Í það minnsta ekki á næstu tveimur stórmótum: EM kvenna í desember og HM karla næsta janúar. Samkvæmt yfirlýsingunni nam styrkur síðasta árs á fjórðu milljón króna. Núverandi fjárhagsstaða sambandsins gerir HSÍ ekki kleift að halda þeim stuðningi áfram. Verulegur niðurskurður hefur verið í starfsemi HSÍ undanfarin ár og fækkað hefur verið í starfsliðum flestra landsliða, til dæmis á stórmótum yngri landsliða í sumar þar sem einungis fjórir starfsmenn fylgdu hverju liði. Andstæðingar Íslands voru jafnvel með allt að níu starfsmenn í sínum teymum. HSÍ þakkar Sérsveitinni þó stuðninginn sem og öllum þeim sem standa með íslensku landsliðunum. Þrátt fyrir niðurskurðinn skiptir stuðningurinn leikmenn og þjálfara miklu máli.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/23/2026, 2:05:20 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com