Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Segir rangt að Hörður hafi verið beðinn um að víkja af fundum þegar reksturinn var ræddur

RÚV ·

„Hörður hefur verið boðaður á alla stjórnarfundi Landsvirkjunar nema þá þar sem verið er að fjalla um málefni sem tengjast honum beint,“ segir Brynja Baldursdóttir stjórnarformaður Landsvirkjunar innt eftir viðbrögðum sínum við ummælum Harðar Arnarsonar. Hann sagði lausu starfi sínu sem forstjóri Landsvirkjunar fyrr í mánuðinum. Sagði stjórn hafa fundað án sín Hörður sagði í Sprengisandi á Bylgjunni um helgina að verklag milli sín og stjórnar hefði breyst – stjórn Landsvirkjunar hefði meðal annars fundað án þess að honum hefði verið boðið. Þá hefði honum verið meinuð aðkoma til að tjá sín mál á fundum og honum verið gert að víkja meðan mál tengd rekstri komu til umræðu. Brynja segir það af og frá að Hörður hafi verið beðinn um að víkja af fundum þegar reksturinn var ræddur. „Miðað við það hvað Hörður er með djúpa þekkingu á Landsvirkjun, gott innsæi og mikla reynslu þá hefur hans innlegg alltaf verið mikilvægt þegar rekstur og málefni Landsvirkjunar hafa verið rædd,“ segir hún. Heimir Már: „Stjórn Landsvirkjunar er óhæf“ Starfslok Harðar og samskipti hans við stjórn Landsvirkjunar hafa verið milli tannanna á fólki að undanförnu. Ingvi Hrafn Jónsson, fyrrum fréttastjóri, skrifaði á Facebook í gærkvöldi að formenn ríkisstjórnarflokkanna hefðu greinilega hrakið Hörð úr starfi. Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri og upplýsingafulltrúi Flokks fólksins, svaraði honum og sagðist ekki telja það. „En það breytir því ekki að þessi stjórn Landsvirkjunar er óhæf.“ Brynja segist ekki sammála Heimi. Þvert á móti segir hún að stjórn Landsvirkjunar hafi lagt mikið upp úr góðum vinnubrögðum og að fylgja lögum og reglum. Fóru yfir dagskrána fyrir stjórnarfundi yfir hádegisverði Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra sagði við Bítið á Bylgjunni að engir formlegir stjórnarfundir hefðu verið haldnir án Harðar en stjórnarmenn hefðu hist og borðað hádegismat saman fyrir fundina. Brynja staðfestir að þetta verklag hafi verið tekið upp fyrir um rúmlega ári. „Það er ekki sky

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/26/2026, 2:50:40 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗