Líkamshlutar manns fundust í Rínarfljóti
RÚV ·
Þrír menn fundu poka sem innihéldu fótlegg af manni þegar þeir gengu meðfram árbakka Rínarfljóts í Stein, skammt frá Basel í Sviss, í gær. Lögreglan í svissnesku kantónunni Aargau fann síðar fleiri poka með líkamshlutum manns eftir leit sem framkvæmd var með aðstoð báts og kafara. Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að allt bendi til manndráps, samkvæmt frétt svissneska miðilsins blue News. Lögreglan hefur hafið rannsókn á málinu en hefur engan grunaðan að svo stöddu. Ekki hefur tekist að bera kennsl á hinn látna.
Upplýsingar um birtingu og heimild
- Vettvangur
- NewsTiVi
- Heimild
- RÚV
- Birt
- 10/26/2026, 7:52:30 PM
- Land
- Iceland
Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.
Samband: info@newstivi.com