Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Gagnrýni á breytingar einkunnakerfis stormur í vatnsglasi

RÚV ·

Ekki kemur til greina að fresta innleiðingu nýs einkunnakvarða fyrir 10. bekk, segir Inga Sæland menntamálaráðherra. Til stendur að innleiða kvarðann á næsta ári. Hún segir að gagnrýni á fyrirkomulagið eigi rétt á sér, en sé þó stormur í vatnsglasi. Skólar þegar farnir að gefa einkunn í tölustöfum Nemendur í 10. bekk grunnskóla fá lokaeinkunn í tölustöfum í stað bókstafa í vor, verði áætlanir Ingu Sæland menntamálaráðherra að veruleika. Það verður í fyrsta sinn í rúman áratug sem einkunnir í grunnskóla verða í tölustöfum. Innleiðing nýs einkunnakvarða var birt í samráðsgátt stjórnvalda og 116 umsagnir bárust. Fjölmargar þeirra gagnrýna fyrirkomulagið. Fyrirvari breytinga sé of skammur og innleiðingin of hröð og óskýr. Inga Sæland, menntamálaráðherra, segir gagnrýnina storm í vatnsglasi. Hún sé þó skiljanleg. „Eins og gengur og gerist þegar verið er að ráðast í einhverjar breytingar. Það er nú samt gaman að segja frá því að það eru nokkrir skólar farnir að gefa tölustafaeinkunnir í prófunum sem þeir hafa verið að leggja fyrir frá því í haust og ekki bara í 10. bekk, heldur eru þeir að tileinka sér tölukerfið í öllum bekkjum í öllum einkunnum.“ Nýr námsmatskvarði ekki afturhvarf til gamla tölustafakerfisins Inga segir það sammerkt með umsögnunum að enginn sé á móti breytingunum sem slíkum. Óvissa sé skiljanleg þar sem ekki er búið að gefa út reglugerðina. Vinna sé í fullum gangi innan ráðuneytisins. Aðspurð segir Inga að nýr námsmatskvarði sé ekki afturhvarf til gamla tölustafakerfisins. Aðalnámskrá, sem til stendur að taka til gagngerrar endurskoðunar á næstu tveimur árum, sé hæfnimiðuð og enn sé tekið tillit til þess við einkunnagjöf. „En ég er ekki heilluð af því fyrirkomulagi, svo það sé sagt alveg eins og er. Ég ætlast bara til þess að nemendur fái þá einkunn sem að þeir stóðu og að það verði ekki hægt að gera neitt mikið annað með það.“ „Ekki verið að þröngva neinu í gegn“ Grunnskólarnir hafa frest til 10. janúar til að birta endurskoðaða skólanámsskrá og því er

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/23/2026, 12:59:00 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗