Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Arnar valdi 17 fyrir EM - Dana ekki með

RÚV ·

Dana Björg, sem verið hefur aðalhornamaður íslenska liðsins vinstra megin á síðustu árum, hefur glímt við meiðsli í ökkla frá því í mars og hefur ekki fengið sig góða af þeim meiðslum. Arnar valdi 17 leikmenn en má taka 18 með sér í lokakeppnina sjálfa. Hann ákvað að halda einu lausu sæti þar sem enn er mánuður til stefnu og eitt og annað getur komið upp á. Riðill Íslands er leikinn í Oradea í Rúmeníu og mætir Ísland þar Slóveníu, Svarfjallalandi og Ungverjalandi dagana 3., 5. og 7. desember. Allir leikir Íslands eru á RÚV. Hópurinn er eftirfarandi: Markverðir: Hafdís Renötudóttir (Valur) Sara Sif Helgadóttir (Haukar) Útileikmenn: Elín Klara Þorkelsdóttir (IK Sävehof) Lovísa Thompson (Benfica) Thea Imani Sturludóttir (Craiova) Sonja Lind Sigsteinsdóttir (Haukar) Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín (Thüringer) Elín Rósa Magnúsdóttir (HSG Blomberg-Lippe) Díana Dögg Magnúsdóttir (HSG Blomberg-Lippe) Matthildur Lilja Jónsdóttir (ÍR) Katrín Tinna Jensdóttir (HH Elite) Sara Dögg Hjaltadóttir (ÍR) Rakel Oddný Guðmundsdóttir (Haukar) Sandra Erlingsdóttir (ÍBV) Elísa Elíasdóttir (Valur) Katrín Anna Ásmundsdóttir (Fram) Lilja Ágústsdóttir (Zwickau)

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/30/2026, 12:31:36 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗