Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Höfundar hafi tekið á sig ósanngjarnan skerf af samdrætti í bóksölu

RÚV ·

Bókaútgáfa hefur gjörbreyst á síðustu árum og áratugum og sala á pappírsbókum dregist saman. Internetið, samfélagsmiðlar og hljóðbækur hófu innreið sína en skila ekki tekjum í sama mæli og prentuð eintök. Tekjur höfunda hafa rýrnað, hvort sem þær eru vegna bóksölu, listamannalauna, útlána á bókasöfnum eða annarra verkefna. Það vakti athygli fyrir skemmstu að Steinar Bragi, sem hefur gefið út bækur sínar hjá Máli og menningu síðan 2006, er genginn til liðs við nýtt forlag. Ástæðuna segir hann vera kjörin sem rithöfundum bjóðast. Að nýju útgáfunni standa höfundar sem ætla að freista þess að skila meiru í vasa rithöfunda en þeir fá í dag. Í samtali við þáttinn útskýrði Eiríkur Örn Norðdahl rithöfundur hvernig rithöfundar fá greitt í fjórum meginatriðum - tekjur af bóksölu, listamannalaun, greiðslur úr bókasafnssjóði og önnur verkefni tengdum ritstörfum. Undir þau falla til að mynda upplestur og framkomur, þýðingar, pistlaskrif og fleira. Fjallað er um tekjustofna rithöfunda í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag. Þáttinn má hlusta á hér: Bókaútgáfa hefur gjörbreyst á síðustu árum og áratugum og sala á pappírsbókum dregist saman. Tekjur höfunda hafa rýrnað, hvort sem þær eru vegna bóksölu, listamannalauna, útlána á bókasöfnum eða annarra verkefna. Hlutföllin á milli þessara tekjustofna eru ólík eftir því hvernig bækur höfundarnir skrifa. Barnabókahöfundar fá allajafna meira úr bókasafnssjóði en fá sjaldnar listamannalaun. Höfundar fagurbókmennta fá lægri greiðslur úr bókasafnssjóði en eru líklegri til að hljóta listamannalaun. Stóð betur í upphafi ferilsins Allar tekjuleiðirnar eiga þó eitt sameiginlegt, segir Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands. „Þær hafa ýmist staðið í stað, lækkað eða í besta falli fylgt verðlagsþróunin en ekki launaþróun.“ Eiríkur Örn gaf út sín fyrstu verk í kringum síðustu aldamót. „2007 segi ég upp vinnunni minni og er þá bara í þýðingum og svona harki. Ég gat lifað af því án þess að vera með nein listamannalaun eða nei

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/23/2026, 2:28:57 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗