Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

Guðmundur Flóki vann silfur á sterku móti í Rúmeníu

RÚV ·

Guðmundur Flóki Sigurjónsson vann til silfurverðlauna á alþjóðlega stigamótinu Dracula Open í taekwondo sem fram fór í Búkarest í Rúmeníu um helgina. Hann vann fjóra bardaga á leið sinni í úrslit í -87 kg flokki, meðal annars gegn tveimur keppendum sem hafa tekið þátt í Ólympíuleikum eða eru meðal tíu efstu á heimslistanum. Um 1.500 keppendur tóku þátt í mótinu, þar af um 500 í fullorðinsflokki. Guðmundur Flóki keppir alla jafna í -80 kg flokki og er þar í 22. sæti heimslistans. Hann keppti þó að þessu sinni í -87 kg flokki. Guðmundur Flóki hóf keppni með 2-1 sigri á keppanda frá Tógó áður en hann mætti Króata sem er í áttunda sæti heimslistans í flokki undir 87 kílóum. Guðmundur vann þann bardaga einnig 2-1 og tryggði sér síðan sæti í undanúrslitum með öruggum 2-0 sigri á heimamanni frá Rúmeníu. Í undanúrslitunum mætti hann ólympíufara frá Búrkína Fasó og hafði betur 2-1 eftir spennandi viðureign þar sem úrslitin réðust á lokasekúndum síðustu tveggja lotanna. Í úrslitabardaganum mætti Guðmundur Flóki Brasilíumanni sem er í þriðja sæti heimslistans í þyngdarflokknum. Brasilíumaðurinn reyndist sterkari og Guðmundur Flóki þurfti því að sætta sig við silfurverðlaunin eftir fimm bardaga á mótinu. Ingibjörg Erla Grétarsdóttir keppti einnig fyrir Íslands hönd í flokki kvenna undir 62 kílóum. Hún sat hjá í fyrstu umferð en tapaði síðan 0-2 fyrir spænskum keppanda og féll úr keppni. Guðmundur Flóki, Ingibjörg og Leo Speight stefna öll á að komast á Ólympíuleikana í Los Angeles í Bandaríkjunum sem haldnir verða sumarið 2028. Til þess þarf að safna stigum frá alþjóðlegum mótum.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/26/2026, 3:29:37 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗