Nýjustu fréttir
—á netinu
← Fréttir

You Can See Everything sýnd í Smárabíó

RÚV ·

Heimildarmyndin You Can See Everything verður sýnd í Smárabíó í lok nóvember. You Can See Everything eða Þú getur séð allt er titill heimildarmyndar Nathan Fielder um Elizabeth Holmes sem hefur hlotið glæsta dóma frá útgáfu sinni á dögunum. Íslendingar hafa sent fjölda fyrirspurna á kvikmyndahús til að spyrjast fyrir um sýningu myndarinnar en það lá ekki fyrir hver ætti sýningarréttinn, þar til nú. Konstantín Mikaelsson, framkvæmdastjóri Smárabíós, staðfestir við fréttastofu að búið sé að greiða úr réttindamálum og Smárabíó fái réttindin í gegnum Sony samkvæmt samningi. Hann segir að stefnt sé að því að sýna myndina 26. nóvember. Í heimildarmyndinni dvelur kvikmyndagerðarmaðurinn Fielder á heimili Holmes á meðan hún bíður eftir að hefja afplánun. Holmes var dæmd í 11 ára fangelsi fyrir fjársvik, en hún stofnaði nýsköpunarfyrirtækið Theranos sem kynnti byltingarkennda blóðskimunartækni sem átti að geta greint margvíslega sjúkdóma með fáeinum blóðdropum. Það kom á daginn að tæknin hafði aldrei virkað. Holmes var þó sýknuð af ákæru fyrir að hafa vísvitandi sagt almenningi ósatt. Stiklur úr myndinni hafa kveikt áhuga margra. Sú fyrsta sem var birt í september sýnir Fielder og Holmes horfa djúpt í augu hvor annars. „Ég hef enga ástæðu til þess að blekkja þig. Auðvitað er ég ekki að blekkja þig,“ segir Holmes við Fielder. Mikill áhugi er á kvikmyndinni hér á landi líkt og víðar og umræður hafa skapast á íslenskum Reddit-þráðum og Facebook-hópum um hvort myndin yrði sýnd hér á landi. Aldrei jafn mikil spenna fyrir heimildarmynd „Það hefur eiginlega aldrei verið jafn mikill spenningur fyrir heimildarmynd,“ segir Ása Baldursdóttir, dagskrárstjóri í Bíó Paradís. „Fólk er að tryllast yfir þessari mynd og ég er þar með talin.“ Hún segir síma kvikmyndahússins ekki hætta að hringja og pósthólf þess fullt af fyrirspurnum um myndina.

XFacebookWhatsAppTelegram

Upplýsingar um birtingu og heimild

Vettvangur
NewsTiVi
Heimild
RÚV
Birt
10/22/2026, 6:24:21 PM
Land
Iceland

Fyrirsögn og samantekt koma frá útgefanda. Lestu alla greinina á vef heimildarinnar.

Samband: info@newstivi.com

Lesa hjá heimild · RÚV ↗